Nú bjóðum við til sölu nýja útsetningu að laginu “Hátíð fer að höndum ein”. Lagið er útsett af Stefáni Þorleifssyni sem jafnframt hefur sett nýja hljóma á lagið sem gefur því nýjan blæ.
Hægt er að kaupa lagið hjá okkur og stýrir eintakafjöldi verði útsetningarinnar.
5-10 eintök kr. 589.- stk.
Fleiri eintök eru ódýrari. Hafið samband til að afla ykkur upplýsinga.
Bókin …að bora í vegg er farin í prentun og er væntanleg úr prentun í næstu viku. Í framhaldinu munum við hafa samband við þá sem pöntuðu bækur á kvennakóramótinu í vor og fáum staðfestar tölur svo hægt sé að ganga frá afgreiðslu á bókunum.
Í dag fórum við Magnea og kynntum komandi útgáfu fyrir kórstjórum kvennakóra á kóramóti á Selfossi. Óhætt er að segja að viðtökur fóru framúr björtustu vonum. Allir voru ánægðir með framtakið og óskuðu eftir að kaupa bókina af okkur.
Þetta er hvatning til að halda áfram á sömu braut og gefa út fleiri bækur.
Netfang okkar er ekkertmal@tonlist.net Það er bæði hægt að panta bækur og/eða óska eftir útsetningum.
Í lok sumars kemur út fyrsta bókin sem Magnea Gunnarsdóttir og Stefán Þorleifsson hafa safnað saman. Um er að ræða bókina …að bora í vegg er inniheldur útsetningar að sex íslenskum dægurlögum úr ýmsum áttum.